Month: September 2012
-
Music is my sport
Í undirbúningi okkar fyrir landsleiki hjá A-landsliði kvenna í knattspyrnu horfum við alltaf á mótiverandi vídeó. Yfirleitt bý ég þau sjálfur til en stundum lærum við af öðrum, jafnvel af einhverjum í allt öðrum geira. Hér er vídeó sem ég sýndi stelpunum í síðasta landsliðsverkefni. Ne-Yo er frábær söngvari, lagahöfundur, tónlistarframleiðandi, dansari og leikari. Hann…
-
Töfrakorterið
Ég spilaði fótbolta í meistaraflokki frá 1992-2005. Ég spilaði með KR, Víkingi, Þrótti og ÍA hér á Íslandi. Sem atvinnumaður spilaði ég með Walsall og Chester í Englandi og Harelbeke í belgísku úrvalsdeildinni. Alls voru þetta 14 keppnistímabil og ég spilaði því fótbolta með sennilega 200-300 mismunandi leikmönnum eða svo. Ég spilaði með mörgum af…
-
Skrifaðu þína eigin sögu
Hver er fyrirmyndin þín? Er það einhver sem hefur náð árangri á sínu sviði sem þig langar til að líkja eftir? Hérna er áskorun til þín. Geturðu náð ennþá betri árangri en fyrirmyndin þín? Það er frábær áskorun. Geturðu áorkað einhverju sem engum hefur tekist áður? Þá þarftu að leggja á þig meira en þú…
-
Ísland best í heimi?
Ísland er fámennt land. Hér búa innan við 320.000 manns. Um 21.000 manns eru skráðir iðkendur í knattspyrnu. Um 14.500 karlar og 6.500 konur samkvæmt nýjustu tölum ef ég man rétt. Einu þjóðirnar innan Evrópu sem eru fámennari en við eru Færeyjar, Liechtenstein, Andorra og San Marino. Þetta setur Ísland í 49. sæti á meðal…
-
Hvað get ég lært af U-21 árs landsliði Íslands í knattspyrnu?
Árin 2009-2011 eignaðist Ísland sennilega sitt sterkasta U-21 árs landslið í knattspyrnu frá upphafi. Það lið komst í lokakeppni Evrópumótsins í fyrsta skipti í okkar knattspyrnusögu. Liðið var skipað mörgum frábærum leikmönnum, Gylfa Sigurðssyni, Kolbeini Sigþórssyni og Aroni Einari Gunnarssyni svo nokkrir séu nefndir. Liðið burstaði meðal annars Evrópumeistara Þýskalands á leið sinni í lokakeppnina.…