Uncategorized

Afrekin í lífinu okkar

Posted by on 09/10/2012 at 2:35 am

Í dag var mjög eftirminnilegur dagur hjá mér í vinnunni en ég vinn sem fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands.  Það sem var sérstakt var að ég hélt fyrirlestur fyrir valdamesta mann í heiminum í knattspyrnu, forseta FIFA (Alþjóða knattspyrnusambandsins) Joseph Blatter sem er staddur í heimsókn hér á landi á vegum KSÍ. Mitt hlutverk var að kynna […]

Fyrirlestur fyrir stjórnendur

Posted by on 07/10/2012 at 11:03 pm

Ég hélt fyrirlestur fyrir stjórnendur Securitas um helgina.  Fyrirlesturinn hét:  “Hvað þarf til að ná árangri? – Hugarfar sigurvegarans.”  Hópurinn var hress og skemmtilegur og það er alltaf gaman að tala við svoleiðis hópa.  Ef þú hefur áhuga á að fá slíkan fyrirlestur fyrir þinn vinnustað, hóp, félag, skóla eða fyrirtæki, vertu þá endilega í […]

Hvernig kemst ég í landsliðið?

Posted by on 06/10/2012 at 12:15 am

Ég fæ oft spurninguna hér að ofan. Spurningunni svara ég oftast svona og svarið má eflaust yfirfæra á margt annað en fótbolta svo kannski gagnast svarið þér. Til að komast í landsliðið þarftu að hafa einhvern afgerandi styrkleika.  Hjá sumum er það tækni, hjá öðrum getur það verið hraði.  Hjá sóknarmanni getur það verið að […]

Ég ætla að breyta íþróttinni minni

Posted by on 05/10/2012 at 12:01 am

Það fyrsta sem maður þarf að gera ef maður vill ná árangri er að eiga sér draum.  Þú þarft að vita hvert þú vilt stefna.  Annars getur þú ekki búið þér til plan til að komast þangað sem þú vilt komast.  Alltof margir fara á æfingu eða í skólann eða í vinnuna og hugsa ekkert […]

Ekkert er ómögulegt!

Posted by on 03/10/2012 at 11:39 pm

“Ekkert er ómögulegt” eru einkunnarorð stelpnanna okkar í A-landsliði kvenna í knattspyrnu.  Þær hafa líka sýnt það og sannað oft á undanförnum árum.  Það hefur verið mikill heiður og ánægja að fá að taka þátt í því með þeim.  En nú er svo komið að kvennalandsliðið er að fara í gríðarlega mikilvæga umspilsleiki fyrir lokakeppni […]